|
01.11.2009 16:53:00 / einargunn
Góðan daginn,.
Jæja þá er best að henda einhverju inná þess blogg síða ef má kalla það, en ég veit að ég lofaði að það yrði ekki svona langt í næstu færslu en það er orðið meira en mánuður síðan ég skrifaði eitthvað inná síðuna, en tíminn líður hratt og mér finnst bara vera svona 3 vikur frá síðasta bloggi.
Ég hef nú ekki mikið frá að segja en jú ég tók mig til að lagaði til í minni geymslunni, þar að segja spaslaði í sprungu - málaði og dúkalagði hana líka, og svo er ég búinn að vera að spila golf annað slagið, en annars er voða lítið að frétta af mér, sem þíðir að það hefur ekki komið neitt fyrir mig eða enginn klaufaskapur.
Svo verð ég að minnast aðeins og á gengi Liverpool en ég skil ekki afhverju þeir ná ekki að vinna leiki nema á móti Man Utd sem ég var mjög ósáttur við aðalega út í dómarann en Man Utd menn spiluðu eins og krakkar í þeim leik, og svo er stór leikur um næstu helgi en þá er Man Utd - Chelsea eða öfugt ég man ekki á hvorum vellinum er leikið.
Jú ég er að gleima einu en ég fór á spilavist síðastliðin fimmtudag og ég vann sem kom mér á óvart en ég fékk ekki góð spil allt kvöldið en það var mótspilarinn sem reddaði mér oft en ég var skástur í nóloinu, en þetta var góð skemmtun.
Einar var í golfi.
»
26.09.2009 18:33:01 / einargunn
Góða kvöldið.
Jú viti menn ég er enn á lífi þrátt fyrir allt saman en ég er ekki búinn að vera duglegur að blogga undanfarið hvað sem nú veldur því en ég mundi halda að það væri leti og svo er ekki mikið að frétta af mér eins og vanalega en ég skellti mér hins vegar á meginlandi fyrir stuttu en það verður meira um það síðar í þessari færslu.
EIns og ég sagði fór ég á meginlandið fyrir stuttu og aðalega var þetta hugsað sem golf fer og svo auðvitað var verslað aðeins en það helsta í þeim dúr var rúm - reiðhjól og svo margt annað en þetta var það helsta en förum aftur í golfi en ég spilaði 2 heila hringi á Jaðri en fyrri hringinn fór ég á 108 höggum og seinni fór ég á 105 höggum en svo ætlaði ég að taka 3 hringinn en ég og frændi minn hættum eftir fyrri 9 holurnar en þá var ég á 52 höggum og var að bæta mig en á þessum holum fékk ég 1 fugl en svo fór ég reyndar líka 1 hring á vellinum á Dalvík og þar lék ég hringinn á 96 höggum, en ég var alltaf að bæta mig en aðal skýringin er sú að ég var farin að venjast að pútta á þessum flötum en þær er 100 sinnum hraðari en í Grímsey eða þar sem ég er að æfa mig.
En það var gert margt annað en að spila golf í bænum en ég var mjög duglegur að éta líka en mér var boðið á Greifann einu sinni og auðvitað var fengið sér 1 pizzu og svo skrapp ég til Hríseyjar í mat til frænku minnar og það var auðvitað veisla og ég át yfir mig þar og það var líka gaman að fara þangað en ég fór síðast til Hríseyjar árið 1998 eða 1999 að mig minnir, en þið megið leiðrétta mig ef það er vittlaust, og síðan át ég margt annað sem var mjög gott en endaði með því að fá mér pizzu á jóni sprett.
En ætla að láta þetta nægja að sinni en ég lofa því að það verði ekki svona langt í næsta blogg hjá mér.
Einar ný kominn af meginlandinu.
»
02.08.2009 17:02:39 / einargunn
Góðan daginn.
Vá hvað tíminn líður hratt en það er kominn ágúst og mér fannst júlí veru rétt byrjaður og hann er búin strax og svo er enski boltinn að byrja eftir viku en þá er góðgerðaskjöldurinn eða samfélagsskjöldurinn en það fer eftir því hvað menn vilja kalla þennann skjöld en í leiknum mætast Man Utd og Chelsea, en ég vona að minir menn vinni en það eru Man Utd fyrir þá sem vita ekki með hvaða liði ég held.
Eins og flestir vita þá á ég það til að vera frekar óheppinn stundum og það kemur líka fyrir að ég sé heppinn en það skeður ekki oft en ég var að setja upp rúllugardínu í eldhúsinu og ég þurfti að nota stól til að standa á með aðra löppina og hin var á eldhúsbekknum, en svo vildi skemtiega til að stólinn rann undan mér og ég rétt náði að standa í lappirnar en það munaði ekki miklu að ég færi á hausinn og ekki ná með það en ég skallaði líka ljósið ofan við vaskinn 2 held ég, en að lokum komst gardínan upp og ég brasti allveg hringinn.
Nú á vel við Golf óði Grímseyingurinn, en ég er búinn að vera duglegur við að stunda golf undanfarið en ég fór í golf á föstudaginn og í gær 2 sinnum en seinna skyftið var ég að slá flötina til að gera hana betri og svo er ég fara á eftir í golf, reyndar með 2 öðrum, og það verður haldið fyrsta golfmót í Grímsey að svo ég viti til en það má leyðrétta mig ef ég er að fara með einhverja vittleysu, en ég stefni að vinna þetta mót.
Einar alltaf í golf.
»
07.07.2009 16:31:54 / einargunn
Góðan daginn.
Já þið sjáðið rétt ég er enn á lífi en ég viðurkenni að ég er að verða frekar skrítinn en þið verðið að dæma um það, en ég hef gert margt á þessum mánuði og ég ætla að segja frá einhverju af þessu.
Þann 19 júní fór ég í sumafrí og það byrjaði með látum vegna þess að það var sumarsólstöðuhátið í Grímsey um helgina og það sem var á dagskrá voru tónleikar með KK í kirkjunni og um kvöldið var matur í múla og svo hagyringakvöld sem var tær snild eins og tónleikarnir og svo á sunnudaginum voru aðrir tónleikar en þá voru Álftagerðisbræður með tónleika og svo voru hagyrðingarnir á tónleikunum og komu því nokkrar vísur af og til, og það var bara skemmtilegt.
Svo á mánudaginn skrapp ég á meginlandið eða til útlanda, en þetta var aðallega hugsað sem verslunarferð og það var það því ég fékk kaupæði á þeim tíma sem ég var á meginlandinu en það sem ég keyfti var slatti af fötum - myndavél - og margt annað, en svo fór ég líka í golf en meira um það seinna og svo líka til tannlænisins sem var ekki skemmtilegt, en þar komst ég að einu að tannlæknar eru skrítinn þjóðflokkur því þeir spyrja mann að öllu mögulegu þegar það eru 4 hendur uppí manni og ekki sjens að svara þeim, en samt er ekki hægt að vera án þeirra.
Já ég fór í golf þegar ég var á meginlandinu og frammstaðan var svona lala en mér hefði gengið betur ef ég hafði verið með mínar kylfur en ég afrekaði samt að fá fyrsta fulginn minn en annars var ég á skolla eða verra, en þetta var mjög góður völlur miða við aðstæðurnar sem ég er með í Grímsey, en þetta var völlurinn á þverá í eyjafirði.
Svo keyfti ég málingu á húsið og ég er búinn að bera á það en ég málaði gluggana og svo þakskjeggið en þegar ég var að mála það síðar nefnda málaði ég aðalega mig en ekki húsið en ég náði því, og svo var veðrið ekki uppá sitt besta en það var þoka ekki svo heitt og síðan hélt ég að það mundi fara að rigna en ég fann nokkra dropa en sem betur fer fór ekki að rigna og ég náði að klára.
Ég vona að það verði ekki eins langt í næsta blogg hjá mér.
Einar er á lífi.
»
08.06.2009 12:40:48 / einargunn
Góðan daginn.
Já viti menn ég er en á lífi þrátt fyrir allt saman, en eflaust hafa margir haldið að ég væri dauður en ég er en sprell lifandi fyrir utan nokkur smá einkenni af einhverju sem ég veit ekki um, en hvað um það því að það er að koma blogg á þessa síðu.
Það var mikið að gera í síðustu vika en á fimmtudaginn voru kennarnir að hætta í Grímsey en þessir kennarar er búin að kenna í 14-15 ár, en þeir kendu mér þegar ég var í 4-5-6-7 bekk, og svo fékk einn bátur hnúfubak í netinn en hann var dreginn að landi og svo var honum síðan sleft aftur en þetta var kannski svona 15 tonna kvikindi mundi ég halda en ég er reyndar mjög lélegur að giska á svona lagað.
Það vita flestir um að það var sjómannadagur í gær og auðvitað fór ég niður á bryggju til að fá mér grillaða pylsu og kók og auðvitað til að hlægja aðeins og svo var ferðinni haldið á fótboltavöllinn þar sem sjómenn og landkrabbar mættust, en í fyrstu var þetta einstefna hjá sjómönnum, en staðan var orðin 8-2 en leikurinn endaði 10-9 fyrir sjómönnum, en ég var frekar vonsvikinn, en mér finnst samt aðalatriðið er að var með.
Svo eftir leikinn fór ég heim að grilla en það heppnaðist bara vel eða alltof vel því ég át yfir mig eins og alltaf þegar grillmatur kemur við sögu, en það var grillað lamba lærisneiðar og svínakótelettur sem var tilbúið og svo kryddlagði ég labbafylle sem er heima kjöt og mér fannst það lang best.
Svo tókst mér að ná aðeins lit í gær en það var ekki brúnn heldur rauður en ég brann smá í gær en ekki mikið, enda var ekki hægt annað því það var alveg 11 stiga hiti og logn, en það gerist ekki 2 daga í röð því núna er smá gola og mög kalt.
Ég ætla rétt að vona að það veriði ekki svona langt í næstu blogg hjá mér.
Einar er með strengi aftir boltan í gær
»
14.05.2009 17:45:46 / einargunn
Góðan daginn.
Já viti menn ég ver að fara að blogga en það hefur ekki skeð í langan tíma en mig minnir að það skeði síðast í apríl sem sagt það er allavega hálfur mánuður síðan, en eitt er víst að þetta blogg verður sennilega mjög stutt og skrítið í þokkabót.
Eins og flestir vita þá er Eurovision í gangi núna en þetta á ekki að fara framhjá neinum, en við Íslendingar tókum þátt á þriðjudaginn og við vor um síðasta landið sem komst áfram en þeir fóru samt ekki eftir röð, en ég var að verða frekar svartsýnn á að við mundum ekki komast áfram en sem betur fer hafði ég rangt fyrir mér, en seinni undankeppni er í kvöld, mér finnst Norska lagið vera best í kvöld, en annars fannst mér okkar undankeppni vera sterkari.
Það á vel við titillinn á síðunni Golf óði Grímseyjingurinn, en ég er búinn að spila golf á hverjum degi síðustu daga og svo er ég að reyna að nota tímann áður enn helvítans krían fari að ráðst á mann, en það er alltaf einhver andskotans vindur alltaf, ég fer að vona að það fari að lægja eitthvað svo maður geti æft sig eithvað í logni eða golu en núna er dáldið hvasst, en það er samt sól og það yrði heitt ef þessi vindur væri ekki.
Svo verð ég að minnst aðeins á íþróttir en Man Utd þarf bara 1 stig til að verða enskur meistari en Man Utd á að taka á móti Arsenal á Old Trafford á laugardaginn og svo útileik á móti Hull í síðustu umferð.
Jæja núna ætla ég að hætta þessari vittleysu og er farinn í argandi heitt bað, þangað til næstu passið ykkur á kríunni.
Einar á leiðinni í heitt bað.
»
27.04.2009 17:58:09 / einargunn
Góðan daginn.
Jæja nú er maður ekki legur Grímseyjingur heldur Akureyringur allvega pappírslega séð en ég vil samt alltaf kalla mig Grímseyjing á meðan ég bý í Grímsey, en þetta er frekar skrítið að fara að sofa sem Grímseyjingur og vakna sem Akureyringur.
Svo reyndi ég að horfa á kosningarvökuna á ruv en ég steinsofnaði eitthvað á milli 12 og 1 en ég vaknaði eitthvað um 3 og gafst aftur upp klukkan 4:30 en í fyrra skyftið var það útaf leiðindum og svo nennti ég ekki að bíða eftir næstu tölum í norðaustur kjördæmi þannig að ég fór að sofa.
Brandari dagsins: Sigga litla er að fara með kvöldbænina sína: Góði guð, gerðu mig góða. Ekki samt voða, voða góða. Bara svo góða, að ég verð aldrei flengd.
Unga stúlkan við piltinn: Nei, nei það er enginn heima nema ég og amma og svo kötturinn. Og amma heyrir ekki ekkert og kötturinn kann ekki að tala.
Einar er orðinn Akureyringur
»
22.04.2009 18:28:45 / einargunn
Góðan daginn.
Vá það er kominn 22 apríl og mér finnst eins og mánuðurinn sé rétt byrjaður en það er ekki nema vika eftir af honum, sem er reyndar gott því þá stittist í sumarið, en hvað um það en lóan er kominn og hrossagaukurinn líka svo veit ég að helvítans krían er kominn en ekki til Grímseyjar sem betur fer, en svo má ég nú ekki gleima lundunum en hann er líka kominn.
Eins og flestir vita þá eru kostningar um helgina en þetta á ekki að fara framhjá neinum, þó að maður slökkvi á sjónvarpinu og útvarpinu heyrir maður alltaf orðið kostningar, en þetta er að verða frekar þreytandi en ég ætla auðvitað að kjósa og horfa á kostningar sjónvarpið.
Eins og stendur á síðunni Golf óði Grímseyjingurinn en það á vel við í þessari viku en ég fór í golf á mánudaginn og í gær og ég stefni á að fara í golf á morgun þar að segja efr veður leyfir en ég býst ekki við því, vegna þess að þegar ég ætla að gera eitthvað þá get ég það ekki vegna veðurs.
Svo var einn skemmtilegasti fótbolta leikur í gær en þá mættust Liverpool og Arsenal eða Liverpool og Andrey Arshavin en hann gerði 4 mörk í leiknum en leikurinn andaði 4-4 þar af komu 7 mörk í seinnihálfleik, svo er Man Utd - Portsmouth í kvöld en sá leikur hefst kl 19:00.
Brandari dagsins: Tvær eldri konur tóku sér far með flugvél. Strax og flugvélin var kominn í loft, kölluðu þær á flugfreyjun. Viltu biðja flugmanninn að fljúga ekk hraðar en hljóðið. Okkur lagnar til að tala saman á leiðinni.
Kennarinn: Þetta er nú í 5 skipti sem að þú hefur orðið að sitja eftir þessa viku, Finnur. Hvað segir þú við því? Finnur (andvarpar): Æ-i, ég er feginn að það skuli vera föstudagur í dag.
Læt þetta duga að sinni næst mun ég blogga á næstu sumri,
Einar í lok vetrar.
»
10.04.2009 18:46:33 / einargunn
Góða kvöldið.
Vá hvað tíminn líður hratt en þessi mánuður er að verða hálfnaður en það er reyndar bara 10 í dag, og svo er líka komið 1 ár síðan pabbi dó en mér finnst reyndar það vera svo stutt síðan en það er komið 1 ár.
Eins og flestir vita þá get ég verið frekar óheppinn og klaufskur stundum og það nýjasta í þeim efnum er að ég var að taka sjó af loftnetinu og viti menn stiginn datt og brotnaði líka og ég var fastur upp á þaki en svo komst ég nú niður á endanum því ég náði að láta mömmu hringja í nágrannann og hann kom með stiga og ég komst niður.
Ástæðan fyrir því að ég var uppá þaki er sú að þegar það er slydda þá dettur út sjónvarpið hjá mér og það var slydda þegar ég var fastur upp á þaki og svo næsta dag var slydda en þá fór ég ekki upp en í staðinn henti ég snjóbolta í loftnetið þangað til að snjórinn fór af því.
Maður er að vona að það fari að hætta að snjóa er reyndar að verða frekar pirraður á því en ég skellti mér í smá golf í dag og um lið og ég kom út byrjaði að snjóa er þetta nokkuð fyndið ég bara spyr eða er þetta óheppni.
Brandari dagins:
Hversvegna situr maðurinn þinn og baðar út höndunum allan tímann? - Jú, annað hvort er hann að segja veiðisögu, eða að hann er að lýsa hvernig ég á að leggja bílnum okkar við gangstétt
Einar alltaf jafn óheppinn.
»
02.04.2009 17:40:05 / einargunn
Góðan daginn eða góða kvöldið.
Vá það er strax kominn apríl sem minnir mig á það að það var 1 apríl í gær og ég náði ekki að plata neinn en ég var hins vegar ekki plataður sjálfur sem betur fer en ég mundi sennilega trúa öllu, en ætli apríl verði eins fljótur að líða eins og mars ef svo verður þá er hann búinn eftir svona viku til 10 daga,
Maður er að reyna að léttast eitthvað en það bara gengur ekki neitt en ég er samt búinn að losna við 2 kg í þessari viku en það er nú ekki neitt vegna þess að ég át dáldið mikið um síðustu helgi, en í þessari viku ákvað ég að prófa að éta 1 peru á morgnana áður en ég færi í vinnu og það var fínt nema að ég varð alltaf svo svangur klukkan 10, en ég er enn á lífi svo adrei að vita hvort ég prófi þetta einhvern tímann aftur.
Ekki er þetta veður að fara að skána en núna í þessari viku er veðrið búið að vera eins og í febrúar eða janúar jafnvel en það er búið að vera vont og maður er að fara að langa pínulítið í fótbolta og sérstaklega í golf en það er alltaf þessi helvítans snjór yfir öllu og núna er það slabb sem er enn verra, en ég er að vona að það fari að hlýna eitthvað svo að snjórinn fari.
Brandari dagsins er þessi: Veiðimaðurinn: Veistu hvað þessi á er djúp, góði menn? Drengur: Hún getur ekki verið mjög djúp, vatnið nær ekki nema upp á maga á öndunum.
Einar bíður spenntur eftir því þegar snjórinn fer
»
23.03.2009 18:29:17 / einargunn
Góða kvöldið.
Hvað haldiði að sé að fara að gerast ég held að það sé að koma blogg á þessa síðu en fyrir fram held ég að það verði ekki langt en hvað veit ég.
Ekki er mikið að frétta af mér eins og vanalega en ég skellti mér hins vegar á sjávarréttakvöld á laugardaginn en eins og nafnið gefur til kynna er eru þetta sjávarréttir en ég smakkaði allavega 2 nýjar firsktegundir eða ég veit ekki hvort 1 tegundin telst sem firskur en það var skötuselur og svo selur, og selurinn kom mér skemmtilega á óvart og reyndar allir réttinir sem ég smakkaði, og ég stefni á að fara á það aftur á næstu ári.
Ekki eru mínir menn að gera það gott í enska boltanum en ég er nátturlega að tala um Man Utd eða manstu eftir United, en núna munar aðeins 1 stigi Man Utd og Liverpool en Man Utd á einn leik inni á Liverpool en með sigri geta þeir náð 4 stiga forskoti.
Svo er búið að draga í 8 liða úrslit í meistaradeildinn en leikirnir eru svona Man Utd-Poro, Arsenal-Villarreal, Barcelona-Bayern Munchen, Liverpool-Chelsea og svo í undanúrslitunum mætast liði úr fyrstu 2 leikjnum sem ég nefndi og svo annars vegar liðin úr seinni 2 leikjunum.
Brandari dagins er þessi: Maður á reiðhjóli ók aftan á strætisvagn af stærstu gerð, þar sem vagninn hafði numið staðarvið umferðarljó. Framhjól reiðhjólsins laskaðist mjög og maðurinn vankaðist talsvert. Hann lét það samt ekki á sig fá, lagði frá sér hjólið, hljóp fram með strætisvagninumog hrópaði ákafur til vagnstjórans: Meiddist nokkur í vagninum?
Einar ekki glaður
»
12.03.2009 22:28:11 / einargunn
Góða kvöldið.
Ekki er ég að skána með að blogga meira er sennilega að versna og ég hélt að það væri ekki hægt, en hvað um það ég er allavega byrjaður að blogga.
Það er búið að snjóa svo mikið í Grímsey að ég man ekki eftir öðru eins í 10 ár eða eitthvað og að þvi tilefni efni fór ég með vini mínum upp í brekkur með slöngu og við fórum nokkrar ferðir niður, en mér tókst meiri að segja að komast heill heim en ég mundi kalla þetta kraftaverk, en það er út af því að ég á það til að vera frekar óheppinn, og ég stefni á að fara aftur í brekkurnar um hlegina en það fer reyndar eftir veðri.
Ekki er maður alltaf sáttur en ég get ekki séð sjónvarpið hjá mér í sennilega er sjónvarpskappallinn farinn eða eitthvað svoleiðis en ég vona að það komist í lag á morgun, æji nei það er föstudagurinn 13 á morgun.
Svo var leikið í meistaradeildinni í vikunni en Lverpool vann Real Madrid 5-0 samanlagt en fyrstu 2 mörkin voru gefinn en fyrst var brotið eða ekki brotið á einum varnamanni Real en það var vafasamt og svo fengu þeir gefins vítaspyrnu, svo vann Man Utd-Inter 2-0 samanlagt, en önnur lið sem komust áfram voru Bayern Munchen-Barcelona-Arsenal-Chelsea-Villarreal-Atletico Madrid.
Svo er stórleikur í enska boltanum um helgina en þá mætast Man Utd og Liverpool, en leikurinn byrjar 12:45 á laugardaginn, og auðvitað ætla ég að horfa á leikinn.
Brandari dagins.
Ólafur bóndi hafði eftir áralangt strit lokið við að koma sér upp stórum og fallegum garði. Og svo kom presturinn í heimsókn og sagði: ,,Hér eigið þið Guð almáttugur fallegan reit, Ólagur minn!" ,,Tja!" svaraði Ólafur. ,,Þú hefðir átt að sjá hann, þegar Guð var einn með hann....!"
Einar í brekkunum
»
01.03.2009 22:15:12 / einargunn
Góða kvöldið.
Jú viti menn ég er á lífi en samt búinn að vera eitthvað slappur en ég er búinn að vera með einhverja flensu í síðustu viku en ég var veikur heima á öskudaginn.
Frá síðustu færslu hef ég gert mart en ég byrjaði á því að raða í mig bollum en mig minnir að þær voru 9 á bolludaginn og 5 eða 6 á sprengidaginn, var svo lasinn á öskudaginn fór í vinnu daginn eftir og svo á bingó þar sem heppninn var ekki með mér eins og vanalega, en svo hafa síðustu 3 dagar reyndar verið rólegir.
Ég hef ekki farið á þrekhjólið í viku vegna slapp leika en daginn fyrir bolludaginn fór ég síðast, en ég er að vona að ég lostni við þessa flensu fljótlega því ég er að verða frekar pirraður af henni.
Svo vil ég minnast á að Man Utd var að vinna Tottenham í dag í enska deildarbikarnum en mínir menn unnu í vítaspyrnukeppni, en þeir voru líka heppnir að tapa ekki í venjulegum leiktima.
Vá hvað ég ætla að vona að það fari að hlýna og vora sem fyrst vegna þess að ég er farinn að klægja í fingurnar við að komast í golf, en mér langaði svo að fari í golf í dag en ég gat það ekki vegna þess að það var svo mikill snjór yfir öllu og svo er kúlurnar hvítar.
Brandar dagsins eru tengdir golfi:
Golf: ,,Leikur þar sem maður reynir að stjórna kúlu með tækjum sem eru illa til verksins fallin."
Versti golfari í heimi sló kúluna sína ofan í hrikalega glompu. ,,Hvaða kylfu á ég að nota núna?" vældi hann til kylfusveins síns. ,,Það skiptir ekki máli hvaða kylfu þú notar, "sagði ungi maðurinn. Taktu bara með nóg af vatni og mat.
Einar eitthvað slappur
»
22.02.2009 18:49:20 / einargunn
Góða kvöldið.
Jæja tíminn líður áfram og það er ekki nema vika eftir að febrúar en mér finnst samt mánuðurinn rétt vera byrjaður og hann er að verða búinn, ætli það komi ekki bara sumar áður en maður veit af.
Á morgun er bolludagur og mér hlakkar til en þá nátturlega fær maður slatta af rjómabollum vonandi en ég er nú þegar búinn að éta 2 bollur og svo verða einhverjar á morgun, síðan er sprengidagur á þriðjudaginn og öskudagur á miðvikudaginn.
Jæja ég er loksins kominn á Facebook en ég gerði síðuna á föstudaginnm, bara að minna alla lesendur þessara bloggsiðu á það en ég mun halda auðvitað áfram með þessa síðu.
Svo var ég hissa á einu en ég var að breyta í herberginu mína og mér tókst það án þess að stórslasa mig sem er nýtt met mundi ég segja, en ég á það til að verða frekar óheppinn stundum.
Konum til hamingju með daginn, en vonandi njótiði dagsins vel.
Einar ný kominn á facebook
»
17.02.2009 22:05:36 / einargunn
Góða kvöldið.
Jú ég er ekki dauður en ég er enn á lífi en samt eitthvað slappur en ég er með einhverja andskotans flensu en er samt að vinna en ég var að skána í gær en versnaði í dag en þetta byrjaði allt saman á föstudaginn 13.
Það var haldið hið árlega þorrablót á föstudaginn 13 tek það fram en það var ekki hægt að flúgja með hlómsveitina vegna veðurs, en að öðru leiti gékk þetta sinn vanagang, það var étið allskonar súrmatur og hangikjöt og margt annað en sumur skoluðu þessu niður með víni en aðrir létu sér nægja að drekka gos en ég var þar að meðal, skemmtiatriðin voru mjög góð maður var með strengi liggur við eftir allan þennann hlátur en ég kom dáldið við í annálinum en það tengist sláturtíðinni og svo að hleypa út kindunum og hrútunum en aðalega hrútunum.
Svo þennann til tekna dag föstudaginn 13 átti ég að fara í klippingu en hún sem ætlaði að klippa mig fékk flensu og ég var áðan í kippingu eða rúning en það er nær því að vera þetta síðarnemda, en ég hef aldrei verið svona stutt hár áður nema kannski þegar ég fæddist en þá man ég auðvitað ekki hvað var mikið hár á hausnum á mér.
Ég hef ekki verið á þrekhjólinu í meira en vika að svo að ég held en ég sendi það í land og ég fékk nýtt í staðinn en eftir að ég setti það saman hef ég verið lasinn eða slappur og ég reykna með að fara á það sem allra fyrst eða það er segja þegar ég næ mér af þessari flensu.
Það kemur brandari með næstu færslu sem verður vonandi flótlega.
Einar alltaf jafn óheppinn
»
Síður: 1 2 3 ... 25
|